
Erling Braut Haaland, framherji Manchester City, skaut létt á fyrrverandi liðsfélaga sinn Dominik Szoboszlai er hann horfði á leik Liverpool og Barnsley í gærkvöldi.
Liverpool tryggði sér sæti í 4. umferð FA-bikarsins með öruggum 4-1 sigri. Szoboszlai kom heimamönnum yfir strax á 9. mínútu með glæsilegu skoti.
Eftir leikinn birti Haaland mynd á Snapchat þar sem hann horfði á leikinn í sjónvarpi og skrifaði: „Domi, frábært mark, brostu aðeins.“
Haaland og Szoboszlai léku saman hjá RB Salzburg og eru enn nánir vinir þrátt fyrir að spila með liðum sem hafa átt í mikilli baráttu um Englandsmeistaratitilinn undanfarin ár.
