

„Ég hef ekki hætt að hugsa um þennan hárblásara á Íslandi. Þetta er svo sniðugt,“ skrifaði hún með myndbandinu.
@her.atlas I only saw this at the secret lagoon and thought it was really clever… assuming it’s was for our hair 🫣 #iceland #lagoon #secretlagoon ♬ original sound – Caitlin
Myndbandið hefur fengið yfir 570 þúsundir áhorfa og margir skrifað athugasemd við það. Margir virðast vera ósáttir við Caitlin og hafa bent henni á að maður eigi aldrei að taka upp myndefni í búningsklefum.
„Það er aldrei í lagi að taka upp í klefum eða baðherbergjum, en í Evrópu er það gjarnan ólöglegt og alls ekki töff!“ sagði einn netverji.
„Þú ættir aldrei að taka upp inni á baði eða í klefa í sundlaugum á Íslandi,“ sagði annar.
Caitlin hefur ekki svarað gagnrýninni. Aðrir ferðamenn hafa skrifað við það og tekið undir með henni að þessir hárblásarar séu frábærir og hafi einmitt vakið mikla lukku hjá þeim þegar þeir heimsóttu Ísland.