fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

„Með þvi að vinna saman, hlusta á hvort annað og finna milliveginn mun allt ganga vel“

Fókus
Sunnudaginn 11. janúar 2026 10:30

Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Kristinn Óli Haraldsson, sem er betur þekktur sem Króli, og dansarinn Ragnhildur Birta Ásmundsdóttir hafa eignast sitt fyrsta barn. Sonurinn fæddist að kvöldi til 29. desember. Parið hefur verið saman í rúmlega sex ár og trúlofuðu þau sig jólin 2024.

DV fannst því tilvalið að athuga hvernig þau eiga saman ef rýnt er í stjörnumerkin.

Króli er sporðdreki og Ragnhildur er bogmaður. Þessi tvö merki geta myndað mjög sterkt samband. Sporðdrekinn er djúpur, leyndardómsfullur og ástríðufullur. Bogmaðurinn er heiðarlegur, ævintýragjarn og lífsglaður. Bæði merkin kunna að meta þessa eiginleika í fari hvors annars og skiptir traust þau miklu máli.

Barneignir geta breytt sambandi þeirra töluvert, til hins betra þó það geti líka verið krefjandi.

Þau eru góð blanda, sporðdrekinn vill rútínu og reglu á meðan bogmaðurinn er sveigjanlegri. Með þvi að vinna saman, hlusta á hvort annað og finna milliveginn mun allt ganga vel.

Bæði þessi merki eru ævintýragjörn og eru til í að kanna nýjar lendur, læra og þroskast. Það er í raun það sem gerir þau náin – þessi endalausa uppspretta nýrrar upplifunar sem þau deila. Þetta er samband sem er alltaf mjög lifandi og mikið í gangi í kringum þessi tvö merki. Bogmaðurinn gæti hins vegar átt erfitt með þrjósku sporðdrekans og sporðdrekanum finnst bogmaðurinn stundum of mikil kappsmanneskja. En eins og áður segir, þá gildir gullni meðalvegurinn í þessu sambandi sem bæði merki verða að finna.

Kristinn Óli Haraldsson
Fæddur: 2. nóvember 1999
Sporðdreki

-Ráðagóður
-Hugrakkur
-Ástríðufullur
-Þrjóskur
-Á erfitt með að treysta
-Dulur

Ragnhildur Birta Ásmundsdóttir 
Fædd: 9. desember 1999
Bogmaður

-Örlát
-Góð kímnigáfa
-heiðvirð
-Opinská
-Lofar upp í ermina á sér
-Óþolinmóð

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu