
Stuðningsmenn Manchester United létu óánægju sína í ljós eftir að ungur leikmaður félagsins birti myndir af sér á leik erkifjendanna í Manchester um síðustu helgi.
Amir Ibragimov, 17 ára miðjumaður úr akademíu United, var viðstaddur 1-1 jafntefli Manchester City og Chelsea á Etihad-leikvanginum síðastliðinn sunnudag. Þar fylgdist hann með leiknum með fyrrverandi UFC-meistaranum Khabib Nurmagomedov og birti bæði myndbönd og ljósmyndir á samfélagsmiðlum. Ein þeirra sýndi Khabib halda á City-treyju með áletruninni „Khabib 29“.
Myndirnar féllu ekki í kramið hjá öllum stuðningsmönnum United. „Hvað ert þú eiginlega að gera þarna? Þú ert leikmaður United,“ skrifaði einn netverji og ansi margir tóku undir.
Ibragimov er fæddur í Makhachkala í Rússlandi árið 2008 en flutti til Englands árið 2017. Hann hóf feril sinn hjá Sheffield United níu ára gamall áður en Manchester United tryggði sér þjónustu hans skömmu síðar. Hann vakti athygli árið 2023 þegar hann, þá aðeins 15 ára, æfði með aðalliðinu undir stjórn Erik ten Hag.