fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Guðni hrósar Ölgerðinni – „Mörg fyrirtæki hafa því miður reynst amlóðar“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 7. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fagnar mjög þeirri ákvörðun Ölgerðarinnar að gefa móðurfélagi samstæðunnar nafnið Bera. Drykkjarvöruhluti fyrirtækisins mun áfram bera nafnið Ölgerðin.

„Ráðamenn Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar eru íslenskunni trúir. Þeir sýna fordæmi sem ætti að vera öðrum fyrirmynd um nafnaval á fyrirtækjum sínum. Móðurfyrirtækið hlaut nafnið Bera, bæði í höfuð á móður Egils og dóttur hans,” segir Guðni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, en hann hefur skrifað nokkuð um og gagnrýnt nafnaval íslenskra fyrirtækja sem oftar en ekki bera ensk heiti. Þá hefur hann gagnrýnt stjórnvöld fyrir að fljóta sofandi að feigðarósi þegar kemur að verndun íslenskrar tungu.

„Innilegar hamingjuóskir, Ölgerðarmenn, þið sýnið móðurmáli okkar mikla virðingu með nafnvalinu, á tímum þegar íslenskan á í vök að verjast. Mörg fyrirtækin hafa því miður reynst amlóðar og orðamóðurinni slakir varðmenn,“ segir hann.

Hann vísar í ummæli Dóra DNA sem sagði fyrir skemmstu að það að vilja verja tungumálið ætti að vera sjálfsagt mál og allir flokkar ættu að leggja sitt af mörkum.

„Hvar eru alþingismenn vorir þegar afabarn Halldórs Laxness gengur fram og segir undanhaldinu og þessum aumingjaskap til syndanna? Ætli þingmennirnir haldi að þeir verði að athlægi og kannski taldir gamaldags gangi þeir fram fyrir skjöldu? Ríkisstjórn og Alþingi bera ábyrgð á þeirri stöðu að hingað eru komnir tugir þúsunda erlends fólks til vinnu sem notar eingöngu ensku í þjónustustörfum sínum. Þetta fólk á að læra íslensku og þarna liggur ný hætta í að fórna tungumálinu. Því eiga ríkisstjórn, Alþingi og atvinnulífið að leggja mikið fjármagn til íslenskukennslu því oft var þörf en nú er nauðsyn. Lilja Alfreðsdóttir var sem ráðherra og alþingismaður íslenskunni trú, hún fór á fund Google og gervigreindarinnar og vann íslenskunni kraftaverk, sem þakkað verður og skiptir miklu máli.“

Guðni segist lengi hafa talið að ekki sé við börnin og skólana að sakast að íslenskan hafi látið undan síga. Þar eigi þeir fullorðnu, ekki síst stjórnmálamenn, fyrirtækjaeigendur og ferðaþjónustan, stærsta sök.

„Alþingi ber að setja lög um að öll fyrirtæki beri nöfn sem falla að móðurmálinu okkar, þ.e. aðalnafn. Svo ég vitni enn til Dóra DNA: „Við þurfum ekki að leggjast svona undir túrismann.“ Á þetta hafa margir bent síðustu misseri, og þar á meðal er Bubbi Morthens söngvari, sem sagði: „Tungumálið okkar er fast í kviksyndi aðgerðaleysis.“ En nú kemur Dóri DNA og honum er alvara. Hver er afstaða þingmanna og ráðherranna? Glotta þeir við tönn? Og fljóta sofandi að feigðarósi íslenskrar tungu?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Áhrifavaldur í hrakningum á Íslandi – Þurfti að sofa í fjárhúsi – „Heimskulegasta hugmynd mánaðarins“

Áhrifavaldur í hrakningum á Íslandi – Þurfti að sofa í fjárhúsi – „Heimskulegasta hugmynd mánaðarins“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina