fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Opnaði sig um erfiða reynslu í pontu Alþingis: „Fyrir átta árum var fótunum kippt undan mér án fyrirvara“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 12. desember 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóra Gunnlaug Briem varaþingmaður Flokks fólksins opnaði sig um erfiða reynslu í pontu Alþingis í dag, reynslu sem breytti lífi hennar til frambúðar.

„Virðulegur forseti. Fyrir átta árum var fótunum kippt undan mér án fyrirvara og ég varð að læra að fara í gegnum lífið á öðrum forsendum. Ég fékk boð eftir lungamyndatöku um að mæta á bráðadeild Hjartagáttar og eftir stutta skoðun var næst á dagskrá að fara í opna hjartaaðgerð og mögulega fleiri aðgerðir. Í dag er ég hjarta- og gigtarsjúklingur og af því leiðir að starfsgeta mín er mismikil. Ég er fyrir vikið fötluð kona.“

Varaþingmaðurinn segir að þessi reynsla hafi aukið skilning hennar á kjörum og réttarstöðu fatlaðs fólks á Íslandi.

„Fatlað fólk er ekki bara einhver hópur þarna úti, tölur á blaði. Það skiptir ekki máli hvort við höfum átt við fötlun allt frá fæðingu eða urðum fötluð síðar á lífsleiðinni, hvort hún sé sýnileg eður ei, heldur hvernig samfélagið bregst við þegar það gerist.“

Það sé því nauðsynlegt að fatlað fólk fái sérstakan réttargæslumann, nokkuð sem Flokkur fólksins hefur lengi barist fyrir. Það myndi stórbæta líf þessa hóps að hafa miðstöð sem getur leiðbeint fötluðu fólki og aðstandendum og veitt nauðsynlegar upplýsingar. Þóra gagnrýnir að velferðarsamfélag Íslendinga hafi þróast með þeim hætti að fatlað fólk þurfi sífellt að berjast fyrir réttindum sínum og þurfi að glíma við fátækt allt sitt líf. Þegar barátta fatlaðs fólks ber svo árangur fer mesta athyglin á þann kostnað sem fylgir auknum réttindum þeirra. Varaþingmaðurinn kallar eftir því að þessu verði breytt og bendir á að það biður enginn um að verða fatlaður, hvorki við fæðingu né síðar á lífsleiðinni.

„Greiðum götu fatlaðs fólks í samfélaginu. Hættum að neyða fólk til að grátbiðja um mannréttindi sem flestum þykir sjálfsögð. Það er okkur öllum í hag. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er, segir máltækið. Við vitum aldrei hvort eða hvenær kann að koma okkur að takast á við áskoranir af þessu tagi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fylgjendafjöldi Kleina hrynur í kjölfar handtöku vegna meintrar nauðgunar

Fylgjendafjöldi Kleina hrynur í kjölfar handtöku vegna meintrar nauðgunar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Í gær

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði
Fréttir
Í gær

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu