

Goðsögn Manchester City, Yaya Touré, hefur endurvakið bitrar deilur sínar við Pep Guardiola og kallað fyrrverandi þjálfara sinn „snák“.
Toure og Guardiola hafa átt stirð samskipti frá því að hinn síðarnefndi tók við Barcelona og seldi Toure til Manchester City árið 2010 eftir að hafa lyft Sergio Busquets upp í aðalliðið.
Guardiola taldi Busquets henta betur í varnartengiliðshlutverkið í sínu fræga 4-3-3 kerfi. Toure spilaði 90 mínútur aðeins níu sinnum á sínu síðasta tímabili með Barcelona, en átti átta glæsileg ár með City.

Þegar Guardiola tók við City árið 2016 versnaði samband þeirra enn frekar þegar Toure var aftur ýtt til hliðar. Umbjóðandi Touré, Dimitri Seluk, gagnrýndi Guardiola opinberlega en baðst síðar afsökunar, án þess að það bætti stöðu leikmannsins. Toure yfirgaf félagið árið 2018.
Í viðtali á YouTube-rásinni ZACK kallaði Toure Guardiola „snák“ og bætti við.
„Ég sé ekki mann, ég sé snák.“ sagði Toure.
Hann lýsti því einnig hvernig Guardiola hafi viljað halda honum hjá Barcelona eftir HM 2010, en eiginkona Touré hafi varað hann viðþ „Hann er ekki góð manneskja.“