fbpx
Laugardagur 14.mars 2026
Fókus

Var fljótasta kona heims en á í dag erfitt með að ganga niður stiga

Fókus
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 14:31

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líf hlaupadrottningarinnar fyrrverandi Marion Jones hefur ekki verið neinn dans á rósum á undanförnum árum.

Á sínum tíma var hún fljótasta kona heims og vann til þrennra gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.

Verðlaunin voru aftur á móti tekin af henni árið 2007 eftir að í ljós kom að hún hafði notað stera. Þá var hún einnig dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir meinsæri, með því að ljúga því að hún hefði ekki notað stera þrátt fyrir að annað kæmi á daginn.

Marion Jones varð fimmtug á dögunum og birti hún myndband á Instagram-síðu sinni á dögunum sem vakti áhyggjur hjá fylgjendum hennar. Sást hún ganga niður stiga og eiga í stökustu erfiðleikum með það. „Þau (hnén) hanga á bláþræði. En ég stend enn,“ sagði hún.

Óvíst er hvað er að hrjá Jones en líklega hafa stífar æfingar um margra ára skeið sett strik í reikninginn.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Marion Jones (@themarionjones)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Opna samtalið við Rice
Fókus
Fyrir 1 viku

Gaf eiginmanni sínum óvenjulega fertugsafmælisgjöf – Þetta voru áhrifin á sambandið

Gaf eiginmanni sínum óvenjulega fertugsafmælisgjöf – Þetta voru áhrifin á sambandið
Fókus
Fyrir 1 viku

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“