fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fókus

Afhjúpar hvernig henni tókst að léttast um 13,6 kíló á tæpum tveimur mánuðum

Fókus
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 10:30

Sydney Sweeney í hlutverki Christy og leikkonan í dag. Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Sydney Sweeney þurfti að bæta á sig miklum vöðvamassa fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Christy, en myndin fjallar um ævi hnefaleikakonunnar Christy Martin.

Sjá stiklu fyrir myndina hér að neðan.

Eftir tökur létti hún sig og tókst það fljótt. Hún fór yfir ferlið í samtali við People.

Sydney sagði að til að þyngjast fyrir hlutverkið hafi hún þurft að borða mjög mikið. En til að léttast hafi hún einfaldlega hætt að lyfta og drekka alla þessa próteinsjeika sem hún var að „drukkna í“ fyrir tökur. Það gerði henni kleift að tapa öllum þeim vöðvamassa sem hún hafði bætt á sig.

„Þetta er það fyrsta sem fer á undan fitu, svo það fór fljótt,“ sagði hún.

Hún sagðist einnig hafa verið að taka kreatín fyrir hlutverkið en hafi hætt því eftir tökur. Síðan borðaði hún „mjög hreint“ fæði og stundaði mikið af cardio æfingum. Ástæðan fyrir því að hún þurfti að gera þetta svona hratt var því sjö vikum eftir að tökum á Christy lauk byrjaði hún að taka upp kvikmyndina The Housemaid og þriðju þáttaröð af Euphoria.

„Ég þurfti að vera mjög ströng við mig sjálfa,“ sagði hún.

Þetta var þó langt frá því að vera auðvelt og sagði Sydney að þetta yrði hugsanlega eina skiptið sem hún myndi breyta útliti sínu á þennan hátt fyrir hlutverk.

Hún sagðist einnig þakklát fyrir hraða meltingu. „Ég vil ekki segja að þetta sé mjög einfalt, en ég hef alltaf verið mjög aktív manneskja og hef alltaf verið mjög dugleg að hreyfa mig. Ég get þyngst en ég á auðvelt með að léttast líka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 3 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short