fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fókus

Grátbað um að leika ekki í þessu atriði í One Tree Hill

Fókus
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 09:30

Chad Michael Murray þá og nú.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Chad Michael Murray afhjúpar hvaða atriði í One Tree Hill hann grátbað um að þurfa ekki að taka upp.

One Tree Hill voru geysivinsælir bandarískir unglingadramaþættir frá 2003 til 2012. Murray lék Lucas Scott, eina af aðalpersónunum.

Atriðið sem um ræðir var í átjánda þætti í sjöttu seríu, þegar Dan Scott (leikinn af Paul Johansson) átti að fá nýtt hjarta en hundur át það. Murray átti að vera í atriðinu.

„Ég man að ég grátbað þá og sagði þeim að ég þyrfti ekki að vera þarna, að það væri engin þörf fyrir Lucas Scott að vera þarna,“ sagði Murray við People.

„Ef þið viljið gera þetta, allt í lagi, en þetta er hræðilegt atriði.“

Í umræddu atriði var Dan á sjúkrahúsinu að bíða eftir að gangast undir hjartaígræðslu þegar sjúkraliði, sem hélt á kassanum með hjartanu í, hrasaði á hundabeisli og hundurinn át hjartað um leið og það lenti á jörðinni.

Murray sagði að á þessum tíma var hann farinn að vera ákveðnari og öruggari að deila sínum hugmyndum og skoðunum.

„Ég man að þetta fór að skipta mig meira máli og ég fór að taka meiri þátt. Ég var eldri og vildi taka ábyrgð. Frekar en að vera 20 ára þá var ég örugglega um 25 ár þegar ég las handritið og ég vissi nákvæmlega hvað þeir voru að gera,“ sagði hann.

Hann sagði það hafa verið meira við atriðið sem meikaði engan sens. Horfðu á það hér að neðan, en Murray fékk ekki að sleppa við að taka þátt í því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Simmi Vill byrjaður í nýrri vinnu

Simmi Vill byrjaður í nýrri vinnu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ferguson heimilislaus og sniðgengin vegna tölvupósta til Epstein

Ferguson heimilislaus og sniðgengin vegna tölvupósta til Epstein
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég kem úr umhverfi þar sem voru bæði mikil veikindi og neysla. Foreldrar mínir þjáðust mikið“

„Ég kem úr umhverfi þar sem voru bæði mikil veikindi og neysla. Foreldrar mínir þjáðust mikið“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg
Fókus
Fyrir 6 dögum

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar