fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Rúnar sendir pillu niður í Laugardal – „Það er það sem mér finnst alltaf svo skrýtið með KSÍ“

433
Laugardaginn 1. nóvember 2025 07:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs Fram, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni hér á 433.is.

Rúnar hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að hann er ekki hrifinn af núverandi fyrirkomulagi Bestu deildarinnar, þar sem henni er skipt í efri og neðri hluta eftir 22 leikja mót. Hann kom liði sínu í efri hlutann á nýafstöðnu tímabili og þó það hafi verið mun skemmtilegra en að vera í þeim neðri að hans sögn breytti það ekki afstöðu hans.

„Það eru allt of margir leikir þar sem markatalan og úrslitin eru bara skrýtin, af því að það er minna undir og mönnum nokk sama. Vægið verður svo ójafnt, því miður. Afturelding fer til dæmis upp á Skaga og ÍA hefur að engu að keppa. Þeir lögðu allt í leikinn og unnu hann, en þeir hefðu hæglega getað spilað öllum þeim sem höfðu ekki spilað í sumar og gefið Aftureldingu leikinn. Það hefði getað kostað Aftureldingu og KR sæti í deildinni,“ benti Rúnar á.

KSÍ setti saman rýnihóp í haust til að fara yfir hvernig fyrstu fjögur ár fyrirkomulagsins hafi til tekist. Rúnar furðar sig á að enginn þjálfari sé í þeim hópi.

„Er einhver þjálfari í þeim rýnihóp? Það er það sem mér finnst alltaf svo skrýtið með KSÍ, mótanefnd sem eru að setja upp mót og alla þessa hluti, það er aldrei rætt við þjálfara sem hafa verið í deildinni í 5-10 ár og hafa skoðanir á hlutunum. Það eru þeir sem standa í þessu stappi alla daga, vita hvernig álagið er á leikmönnum, hvernig þeir hugsa og við þurfum að undirbúa okkar menn. Ég held það væri allt í lagi að fá þeirra álit, fá þá með í svona nefndir. Ég held að þeir geti rýnt jafnvel betur í hlutina en stjórnarmenn sem horfa í krónur og aura eða utanaðkomandi áhugamenn um fótbolta,“ sagði Rúnar.

Viðtalið í heild er í þættinum, sem má nálgast í spilaranum hér ofar, sem og á helstu hlaðvarpsveitum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin geti upplifað martröð á næstunni – Trúðverugleiki hennar hugsanlega í vaskinn vegna alvarlegra brota City

Enska úrvalsdeildin geti upplifað martröð á næstunni – Trúðverugleiki hennar hugsanlega í vaskinn vegna alvarlegra brota City
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Bruno Fernandes jafnar framlag Ronaldo fyrir United

Bruno Fernandes jafnar framlag Ronaldo fyrir United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Árni orðaður við endurkomu til Breiðabliks – Hollendingur sagður vera til taks ef það klikkar

Árni orðaður við endurkomu til Breiðabliks – Hollendingur sagður vera til taks ef það klikkar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Albert borgaði rúman hálfan milljarð fyrir þessa glæsilegu íbúð í Reykjavík

Albert borgaði rúman hálfan milljarð fyrir þessa glæsilegu íbúð í Reykjavík
433Sport
Í gær

Fjögur lið ræða við Bernardo – Eitt félag getur boðið miklu hærri laun en hin

Fjögur lið ræða við Bernardo – Eitt félag getur boðið miklu hærri laun en hin
433Sport
Í gær

Konan sem vill stunda kynlíf tíu sinnum í viku vekur mikla athygli – Virðist vera komin með nýjan unnusta

Konan sem vill stunda kynlíf tíu sinnum í viku vekur mikla athygli – Virðist vera komin með nýjan unnusta