fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Fær skilorðsbundinn dóm fyrir stórhættulega hnífstunguárás á Seltjarnarnesi – Hefur bætt ráð sitt og lokið námi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 14. október 2025 15:30

Frá Seltjarnarnesi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungur maður hefur verið dæmdur í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi  fyrir tvær líkamsárásir sem framdar voru fyrir utan íþróttamiðstöðina á Seltjarnarensi í lok ágúst árið 2021.

Maðurinn er 22 ára í dag en var aðeins 18 ára er hann framdi árásirnar. Annars vegar veittist hann að manni með ofbeldi og sló hann með krepptum hnefa í höfuðið þannig að hann féll aftur fyrir sig í götuna. Hlaut hann brot á fjarlæga hluta sveifarbeins vinstri handar, bólgu yfir vinstra kinnbeini og hrufl á hægri hendi.

Hins vegar réðst hann í kjölfarið á annan mann, sló hann hnefahöggi í höfuðið og stakk hann með hníf í vinstri síðuna. Hlaut brotaþoli langan og djúpan, gapandi skurð á bakvegg brjóstkassa með seytlandi blæðingu út frá skornum bakbreiðavöðva, og einhliða lungnamar.

Er síðarnefnda árásin flokkuð sem stórhættuleg líkamsárás.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Einnig var tekið tillit til ungs aldurs hans er árásin var framin og svo þess að hann hefur lokið námi eftir að þessi atburður átti sér stað. Niðurstaðan er sú að hann þarf ekki að sitja í fangelsi ef hann rýfur ekki skilorð næstu þrjú árin, fær 15 mánaða skilorðsbundinn dóm.

Hann er hins vegar dæmdur til að greiða öðrum brotaþolanum 600 þúsund krónur í miskabætur og hinum 500 þúsund krónur. Auk þess þarf hann að greiða tæplega 800 þúsund krónur í sakarkostnað.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 8. október síðastliðinn.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Fylgjendafjöldi Kleina hrynur í kjölfar handtöku vegna meintrar nauðgunar

Fylgjendafjöldi Kleina hrynur í kjölfar handtöku vegna meintrar nauðgunar
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Í gær

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði
Fréttir
Í gær

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu