fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Vann 10 milljónir í kvöld – „Er þetta símahrekkur?“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. október 2025 21:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heppinn miðaeigandi vann 10 skattfrjálsar milljónir í Milljónaveltu Happdrættis Háskóla Íslands. Þegar miðaeigandinn fékk símtalið góða um vinninginn hélt hann að um hrekk væri að ræða.

„Er þetta símahrekkur?“ spurði fjögurra barna faðirinn sem hlaut stóra vinninginn. Þegar búið var að fullvissa hann um að ekki væri um grín að ræða gladdist hann heldur betur og sagði að peningarnir myndu koma sér vel til að aðstoða börnin á erfiðum fasteignamarkaði.

Alls voru vinningshafar kvöldsins tæplega 5 þúsund talsins og skiptu þeir á milli sín 167 milljónum króna. Einn vann 7 milljónir, hæsta vinninginn í aðalútdrættinum, annar vann 2,5 milljónir og fimm unnu eina milljón hver.

Vinningarnir verða lagðir inn á reikninga miðaeigenda á næstu dögum. Happdrætti Háskólans minnir miðaeigendur á að fara inn á Mínar síður á hhi.is og tryggja að allar upplýsingar séu réttar svo hægt sé að greiða vinningana út.

„Happdrætti Háskólans óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar stuðninginn í gegnum tíðina. Með kaupum á miða í happdrættinu stuðla miðaeigendur að áframhaldandi uppbyggingu Háskóla Íslands og tryggja blómlegt háskólasamfélag. Allur hagnaður af rekstri HHÍ rennur til uppbyggingar Háskóla Íslands og hafa á þriðja tug bygginga risið fyrir happdrættisfé.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Alræmdasti raðmorðingi Rúmeníu laus og orðinn TikTok stjarna – Afhöfðaði mann og kastaði hausnum í stöðuvatn

Alræmdasti raðmorðingi Rúmeníu laus og orðinn TikTok stjarna – Afhöfðaði mann og kastaði hausnum í stöðuvatn
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Rúmlega 14 milljóna bótakrafa í Reykholtsmálinu – Margvísleg vopn í fórum sakborninga gerð upptæk

Rúmlega 14 milljóna bótakrafa í Reykholtsmálinu – Margvísleg vopn í fórum sakborninga gerð upptæk
Fréttir
Í gær

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“
Fréttir
Í gær

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Í gær

Hafnarfjarðarbær biðst forláts á röngum texta

Hafnarfjarðarbær biðst forláts á röngum texta
Fréttir
Í gær

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“