fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Hlustaði ekki á viðvörun móður sinnar um brjóstastækkunina og sér nú eftir því

Fókus
Miðvikudaginn 25. júní 2025 11:23

Denise Richards og Charlie Sheen eiga Sami Sheen.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

OnlyFans-stjarnan Sami Sheen hefur ákveðið að láta fjarlægja brjóstapúðana. Hún er dóttir leikkonunnar og raunveruleikastjörnunnar Denise Richards og leikarans Charlie Sheen.

Það vakti mikla athygli þegar Sami stofnaði OnlyFans-síðu árið 2022, stuttu eftir átján ára afmælisdaginn, bæði vegna frægðar foreldra hennar og ósætti þeirra við ákvörðun dóttur sinnar. Þau bæði tjáðu sig um málið í fjölmiðlum og sagði Charlie að þetta væri allt Denise að kenna. Hún svaraði honum, opinberlega, en síðan þá hafa foreldrarnir tekið starf dóttur sinnar í sátt.

Árið 2023 fór Sami í brjóstastækkun, þrátt fyrir að móðir hennar hafi varað hana við eftir að hafa sjálf gengist undir aðgerðina á sama aldri.

„Það var gert grín að mér þegar ég var unglingur því ég var með svo lítil brjóst, eins og moskítóbit. Ég lét stækka þau á sama aldri og Sami er núna, ég er að reyna að fá hana til að hætta við aðgerðina af sömu ástæðu og ég ætla að láta fjarlægja mína púða, ég vissi ekki hversu eitraðir þessir púðar eru þegar ég var nítján. Þetta er alls ekki auðveld aðgerð, hún er sársaukafull!“ sagði Denise við Bustle á sínum tíma.

Skjáskot/Instagram

Nú eru tvö ár liðin frá aðgerð og hefur Sami tekið þá „erfiðu ákvörðun“ að fjarlægja púðana.

„Ég hef verið að glíma við ýmsa heilsukvilla undanfarin tvö ár og var að komast að því að ég er með brjóstapúðaveiki (e. breast implant illness),“ sagði hún í færslu á Instagram.

Skjáskot/Instagram

„Ég veit ekki hvernig ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en ég er ánægð að vera loksins komin með svar og vona að ég geti látið fjarlægja púðana sem fyrst svo mér fari að líða betur.“

Sami birti síðan mynd af sér frá því áður en hún fór í aðgerðina og sagði að það verður erfitt að fara aftur í minni stærð, ekki líkamlega heldur andlega, en að heilsan skipti meira máli.

Hún birti einnig aðra færslu með einkennunum sem hún hefur verið að glíma við síðastliðin tvö ár, meðal annars ofsaþreytu, hármissi, höfuðverk, liðaverki, vöðvaverki og fleira.

Skjáskot/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“
Fókus
Í gær

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ