Sigurbjörg Jónsdóttir var í fréttum í byrjun maí er hún var borin út úr húsnæði Félagsbústaða við Bríetartún vegna vangoldinnar leigu. Síðan þá hefur Sigurbjörg verið húsnæðislaus og segir valdafólk í borginni ekki hafa staðið við fyrirheit um að henni verði veitt aðstoð við að fá þak yfir höfuðið.
Fréttir af örlögum Sigurbjargar blönduðust fréttum af hömlulausri framgöngu annars leigjanda í húsinu, konu sem sökuð er um ofbeldi og skemmdarverk í garð annarra leigjenda í húsinu, en hefur samt haldið leiguíbúð sinni þar. Sú kona er meðal annars sökuð um ofbeldi í garð Sigurbjargar.
Fyrir skömmu var Sigurbjörg handtekin, að eigin sögn, og kærð fyrir ofbeldishótanir í garð borgarstjóra, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur. Hún neitar sök en segir tilefni handtökunnar hafa verið það að hún sat í bíl, farþegamegin, í götunni þar sem borgarstjóri býr.
„Hún Heiða er náfrænka mín en ég hef aldrei beðið hana um neina greiða. Það eina sem ég hef beðið hana um er að skoða sína vinnu og hvort það þurfi eitthvað að laga. Hún var í velferðarráði sem var yfir Félagsbústöðum,“ segir Sigurbjörg í samtali við DV og telur að Heiða Björg hafi haft aðstöðu til að beita sér fyrir lausn á húsnæðisvanda hennnar, en ekki gert það.
„Ég varð næstum því úti um daginn, það er ekkert gott að gerast, ekki neitt,“ segir Sigurbjörg, sem er á götunni. Hún viðurkennir að hún neyti núna sterkra efna en segir að aðstæður hennar hafi ýtt henni út í harðari neyslu en vanalega.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, sagði í viðtali við Stöð 2, skömmu eftir útburðinn á Sigurbjörg í maí, að velferðarráð væri að vinna að úrlausn fyrir hana. Sigurbjörg segir Sönnu ekki hafa staðið við orð sín. Er DV sendi fyrirspurn til Sönnu um þetta um miðjan maí var svar hennar eftirfarandi:
„Í svona málum er boðið upp á þjónustu og stuðning út frá þörfum manneskjunnar hverju sinni. Ég get ekki greint frá einstaka málum í nánum atriðum vegna persónuverndar.“
Sigurbjörg segir lögreglu hafa handjárnað sig við handtökuna og haldið sér í 16 tíma í fangaklefa. Hún telur aðgerðirnar yfirdrifnar og ekki hafi verið tilefni til þeirra. Hins vegar kann málið að horfa öðruvísi við frá sjónarhorni Heiðu Bjargar. Sigurbjörg segir nefnilega: „Hún er búin að dissa símtöl og sms frá mér í einhverja mánuði núna.“ Það gefur til kynna Sigurbjörg hafi sótt nokkuð að borgarstjóra.
Varðandi það hvað hún hafi verið að gera fyrir utan heimili Heiðu Bjargar segist hún ekkert illt hafa haft í hyggju en vel geti verið að hún hafi ætlað að heimsækja borgarstjórann, frænku sína.
Er DV bar málið undir Heiðu Björgu sagðist hún ekki geta tjáð sig um það: „Mér er ráðlagt að tjá mig ekki um það sem viðkemur öryggismálum borgarstjóra. Vona að þú sýnir því skilning.“