En á myndinni sem ráðuneytið deildi er svolítið sem margir telja líkjast rússneska fánanum.
Garry Kasparov, fyrrum heimsmeistari í skák og Rússi, er yfirlýstur andstæðingur einræðisstjórnar Pútíns og er ekki feiminn við að gagnrýna Pútín.
Myndin vakti athygli hans og skrifaði hann á X um málið: „Var bandaríska varnarmálaráðuneytið hakkað og tveimur rússneskum fánum bætt við eða er vanþekking Trump-stjórnarinnar svo mikil allt niður á lægstu stig?“
Á miðri myndinni sést, vegna litanna, það sem líkist tveimur rússneskum fánum sitt hvorum megin við stjörnurnar. En það er rétt að hafa í huga að litirnir passa einnig við litina í bandaríska þjóðfánanum.
Margir aðrir hafa veitt þessu athygli og hafa skemmt sér vel yfir þessu.
„Eru Bandaríkin opinberlega orðin „oblast“ (hérað í Rússlandi, innsk. blaðamanns). Er það, það sem er í gangi,“ skrifaði einn.
„Er þetta hróp á hjálpar, er ykkur haldið föngnum af Rússlandi? Setjið tvo rússneska fána í viðbót til að segja já,“ skrifaði annar.