Þetta er mat írönsku klerkastjórnarinnar sem bannaði nýlega samlöndum sínum að fara út að ganga með hunda. Það hefur í raun verið bannað í Teheran síðan 2019 en banninu hefur ekki verið framfylgt af neinni hörku. En nú segja yfirvöld að byrjað verði að framfylgja banninu í höfuðborginni og víðar og að hart verði tekið á þeim sem gerast brotlegir við banninu.
Einnig er bannað að vera með hunda í bílum. Saksóknarar segja að hundar á almannafæri séu ógn við lýðheilsu.
Klerkastjórnin lítur á vinnuhunda á borð við varðhunda eða fjárhunda sem ásættanlega en hundar, sem fólk heldur sér eingöngu til ánægju og yndisauka, telur hún allt annað en ásættanlega og séu óviðeigandi vestrænt fyrirbæri því Vesturlönd séu siðlaus og spillt.
Hundar eru flokkaðir sem óhreinir í Íslamstrú og Ali Khamenei, æðsti trúarleiðtogi þjóðarinnar, segir að það sé „óásættanlegt“ að fólk eigi hunda. Hann segir að slef og hundahár séu óhrein og mengi allt sem þau komist í snertingu við. „Hundahár ógilda bænina,“ segir hann.