fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Sport

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

433
Laugardaginn 28. febrúar 2026 12:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni. Þar var rýnt í Bestu deild karla, sem hefst eftir um sex vikur.

Það eru margir spenntir fyrir því að sjá hvað KR gerir í ár eftir að hafa verið í miklum vandræðum í fyrra og bjargað sér frá falli í lokaumferðinni.

„Ég sagði í fyrra að ef þeir myndu redda sér yrði þetta gott á næsta ári. Þeir gerðu það og ég held það verði gríðarlegur lærdómur,“ sagði Sigurbjörn.

video
play-sharp-fill

„Þeir styrkjast gríðarlega á að fá Arnór (Ingva) inn og ég held að varnarleikurinn verði líka betri, ég trúi ekki öðru en að það hafi verið farið vel yfir það.“

Jóhann telur ljóst að gengi KR muni batna en hann er þó ekki endilega á því að frábært tímabil sé í vændum í Vesturbæ.

„Ég held þeir verði ekki í sama veseni og þeir voru í. En þeir eru að einhverju leyti að spila fótbolta sem gæði leikmanna ráða ekki við, þessi svakalega háa lína, þetta háa tempó.“

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum
Hide picture