

Landsframleiðsla jókst að raungildi um 7,2 prósent á árinu 2016 og er nú 10 prósentum meiri en hún var árið 2008. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti á fimmtudag. Á liðnu ári jókst einkaneysla um 6,9 prósent, samneysla um 6,9 prósent og fjárfesting jókst um 22,7 prósent.
„Árlegur vöxtur einkaneyslu hefur ekki mælst meiri frá árinu 2005 en að árinu 2007 undanskildu hefur einkaneysla ekki mælst meiri að raungildi hér á landi,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Þá segir í nýbirtum tölum að útflutningur hafi aukist 11,1 prósent á sama tíma og innflutningur jókst um 14,7 prósent.
Fjárfesting jókst sem fyrr segir um 22,7 prósent á síðasta ári, en árlegur vöxtur fjárfestingar hefur ekki mælst meiri síðan árið 2006.