

Innlegg fyrir landann.
Vikan 06. – 13. Okt. Útlönd koma sterk inn hjá landanum. Hvatning er mikil. Mikil blessun hvílir yfir stjórnkerfinu. Nýtt upphaf. Einu tímabili lýkur og annað tekur við. Mikil birta hvílir yfir því og vernd. Miklir og góðir möguleikar eru framundan fyrir landið okkar fagra. Knús
Hrúturinn stjörnuspá : Samvinna, samræmi, þjónustulund er það sem hrútur þyrfti að nýta sér í daglegum störfum. Eldmóður og áræði er framundan og mikill og skemmtilegur undirbúningur. Passa vel upp á alla pappíra. Fjárhagslegt og tilfinningalegt jafnvægi er framundan. Hamingjan er handan við hornið. Að elska, að unna, er heilun. Knús
Nautið stjörnuspá : Spenna ríkir. Mikið um bréfasamkipti. Það sem hefur verið óútkljáð og er erfitt verkefni endar vel. Stjórnkænska. Nýtt ástríðufullt samband eða samskipti, verkefni kemur inn. Óvæntir hlutir banka upp á. Gaman er að vinna að því sem gleður mann og veitir ánægju. Endurnýjun, endurreisn er heilun. Knús
Tvíburarnir stjörnuspá : Breytingar framundan í viðskiptum. Góðar fréttir koma inn. Erfitt getur verið að hrinda nýjum verkefnum af stað. Skoðanaágreiningur. Eitt tekur enda og nýtt tekur við. Mikil vinátta ríkir. Mikil vernd yfir erfiðu verkefni. Vöxtur í viðskiptum. Nýtt verkefni eða samvinna. Að njóta góðrar listar er heilun. Knús
Krabbinn stjörnuspá : Samvinna á vel við krabba. Mikil forsjón er yfir athafnaseminni. Óvæntar uppákomur. Fjölskyldan skiptir miklu máli. Kærleikur, velvild, vinátta er lykill að góðum samskiptum. Nýtt spennandi verkefni eða samvinna ríkir og er skemmtilegt. Sveigjanleiki er heilun. Knús
Ljónið stjörnuspá : Nýtt atvinnutækifæri kemur upp í hendur ljóns, verður þýðingarmikið. Ný tækifæri er varða fjármál. Allar orðræður þarf að virða og meta. Mikilvægar óskir rætast hjá fjölskyldu ljóns og, í tvígang. Breytingar eru framundan. Stjórnkerfi er ríkjandi í kringum ljón. Samvinna. Upphefð og virðing er heilun. Knús
Meyjan stjörnuspá : Breytingar er varða viðskipti eru framundan hjá meyju. Fjölskyldan kemur sterk inn. Uppfyllt ósk og nýtt samband eða verkefni er framundan. Mikið um bréfaskriftir. Spenna. Góðar fréttir koma inn. Birta er framundan. Mannkærleikur er heilun. Knús
Vogin stjörnuspá : Treysta innsæi sínu. Forsjónin sér um sína. Verklok eru inni í október hjá voginni. Nýtt tekur við. Vinnusemi ríkir. Fjölbreytileiki og breytingar eru framundan. Tign. Fréttir ríkja. Viljastyrkur, einbeitni og ákveðni er gott veganesti í lausn mála. Orka og framtakssemi er heilun. Knús
Sporðdrekinn stjörnuspá : Miklar breytingar eru framundan hjá sporðdreka. Óþægilegar aðstæður ná hámarki en boða jafnframt nýja tíma. Útlönd koma sterk inn. Óvæntar uppákomur banka upp á og er mikil elska þar á bak við. Mikilvæg verkefni dúkka upp. Að láta sig dreyma er núið og ber drauminn með sér. Mikilvægar óskir rætast. Hamingjan er heilun. Knús
Bogmaðurinn stjörnuspá : Góð viðskipti koma og tengjast vinnu. Ef óþægilegar aðstæður ríkja í kringum fjármál, þá mun það breytast. Mikið vald og öryggi er hjá umsvifamiklu fyrirtæki. Stilla skap sitt ef um skoðanaskipti er að ræða. Fara vel yfir áætlanir. Breytingar eru framundan og boða góða tíma. Traust, virðing, velvild er heilun. Knús
Steingeitin stjörnuspá : Draumar rætast hjá steingeit. Frjósemi. Erfið og óútkljáð mál fá farsæla lausn. Góðar fréttir berast og með þeim koma miklar breytingar. Fjárhagslegt og tilfinningalegt öryggi. Velgengni. Skref fram á við í vinnu og heima fyrir. Uppfylltar óskir eru heilun. Knús
Vatnsberinn stjörnuspá : Gaman er að vinna að því að koma erfiðu verkefni af stað. Oft getur verið um skoðanaágreining að ræða og tengist það fjölskyldu. Mikil vernd er yfir vatnsbera. Undir niðri bíða uppfylltar óskir. Stjórnkænska. Mikil vinátta ríkir. Góðar fréttir. Jákvætt hugarfar er heilun. Knús
Fiskarnir stjörnuspá : Mikil vernd og forsjón er yfir fiskum. Óvæntar uppákomur fylgja því. Endurnýjun, endurreisn. Góðar fréttir berast, hagstæð tækifæri. Útlönd koma sterk inn. Nýtt spennandi verkefni eða samvinna er í kortunum. Breytingar eru framundan. Velvild, vinátta, ást er heilun. Knús