

Það var hitað upp fyrir opnunarleik Bestu deildarinnar annað kvöld milli Víkings og Breiðabliks í Íþróttavikunni. Víkingurinn Tómas Guðmundsson og Blikinn Kristján Óli Sigurðsson voru þar gestir Helga Fannars.
Mikil eftirvænting er fyrir leiknum og ekki síður eftir því hvort Fossinn, nýr staður Auðuns Blöndals í Grímsbæ, verði opnaður. Þar ætla stuðningsmenn sér að hita upp, segir Tómas.
Auðunn bíður þess að fá grænt ljós fyrir opnun eins og hann hefur greint frá á samfélagsmiðlum, annars er allt klárt.
„Maður er búinn að vera endurhlaða Instagram-síðuna hans Blö og ef það gengur verður maður þarna eins og húsgagn fram að leik,“ sagði Tómas léttur í bragði í þættinum.