fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Telur sig vera einn besta varnarmann í heimi

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, hefur opnað sig um erfið tímabil á ferlinum og hvernig hann hafi tekist á við gagnrýni. Hann gerði nýjan samning við félagið í vikunni.

Maguire rifjaði upp þegar hann var harðlega gagnrýndur eftir landsleik með enska landsliðinu gegn Skotum árið 2023. Þar skoraði hann sjálfsmark eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Hann segir þetta hafa verið eitt erfiðasta tímabil ferilsins, en fékk mikinn stuðning frá fjölskyldu sinni. Móðir hans, Zoe, steig fram opinberlega og gagnrýndi umfjöllun og framkomu gagnvart honum. „Ég vildi ekki að hún gerði það, en hún sagði einfaldlega að hún ætlaði að gera það,“ sagði Maguire.

Hann viðurkennir að svona aðstæður hafi áhrif á fjölskylduna ekki síður en leikmanninn sjálfan. „Þau sjá hvað við erum að ganga í gegnum og hversu erfitt þetta getur verið,“ sagði hann.

Þrátt fyrir mótlætið segist Maguire hafa styrkst. „Ég myndi ekki breyta neinu. Þetta hefur gert mig sterkari og komið mér þangað sem ég er í dag,“ sagði hann.

Maguire telur sig enn vera meðal bestu varnarmanna heims. „Ég tel að ég hafi staðið mig vel flest tímabilin hjá United og geti enn haft mikil áhrif, bæði í vörn og sókn,“ bætti hann við.

Hann horfir því bjartsýnn fram á veginn þrátt fyrir gagnrýni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum
433Sport
Í gær

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Í gær

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á