fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur

433
Föstudaginn 10. apríl 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var hitað upp fyrir opnunarleik Bestu deildarinnar annað kvöld milli Víkings og Breiðabliks í Íþróttavikunni.

Víkingurinn Tómas Guðmundsson og Blikinn Kristján Óli Sigurðsson voru þar gestir Helga Fannars.

Það vakti athygli þegar Gísli Eyjólfsson gekk í raðir ÍA í vetur er hann kom heim úr atvinnumennsku en fór ekki í Breiðablik, hvar hann var lengi lykilmaður áður en hann fór út.

Tómas segir að samkeppnisaðilar Breiðabliks í Víkingi hafi fagnað þessu mjög.

video
play-sharp-fill

„Það voru margir í Fossvoginum sem skáluðu þegar þeir fréttu að Blika væru ekki að taka Gísla Eyjólfs,“ sagði hann.

„Þeir höfðu bara ekki efni á honum. Mér finnst eiginlega ótrúlegra að Víkingar hafi ekki farið í hann,“ svaraði Kristján þá áður en Tómas tók til máls á ný.

„Það eru fleiri ákvarðanir sem Blikar hafa tekið sem maður hefur fagnað sem Víkingur, að losa Damir og semja svo við Kidda Jóns og Kristinn Steindórs, sem eru jafngamlir. Þeir fylltu svo skarð Damirs með Ívari Erni, sem er flottur hafsent en Damir er betri og enn í fínu standi.“

„Hefði þá ekki verið meira vit í því að halda í Damir, eyða ekki 14 milljónum í nýjan miðvörð og ná í Gísla Eyjólfs?“ velti þáttastjórnandinn Helgi þá upp vegna fyrri ummæla Kristjáns um að peningar hafi ekki verið til staðar fyrir Gísla.

„Þetta er mjög valid punktur og þeir sem stjórna verða að svara fyrir þetta. Ég stjórna því miður engu þarna, þá væri þetta ekki svona,“ sagði Kristján þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á
433Sport
Í gær

United horfir til Ítalíu – Verðmiðinn nokkuð viðráðanlegur

United horfir til Ítalíu – Verðmiðinn nokkuð viðráðanlegur
433Sport
Í gær

Treyjur Ronaldo og Beckham seldust á nokkrar milljónir

Treyjur Ronaldo og Beckham seldust á nokkrar milljónir
433Sport
Í gær

Verður hann óvænt arftaki Alisson hjá Liverpool? – Með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni

Verður hann óvænt arftaki Alisson hjá Liverpool? – Með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni
Hide picture