fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Hemmi Hreiðars bjartsýnn en raunsær – „Deildin er sterkari en nokkru sinni áður“

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við stefnum hærra, það er alveg öruggt. En spáin er svosem alveg eftir bókinni bara,“ segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, við 433.is um það að liðinu sé spáð 6. sæti í Bestu deild karla í sumar af þjálfurum, fyrirliðum og formönnum.

Hermann, sem tók við Val í vetur, segir jafnframt að spáin hafi ekki komið sér á óvart.

„Ekki ef þú tekur allt inn í myndina, leikmannakaup hjá öðrum liðum, leikmannakaup hjá okkur, úrslit í vetur, þá er þetta sirka eftir bókinni.“

video
play-sharp-fill

Valsarar ætla sér þó að afsanna þessa spá og er Hermann spenntur fyrir sumrinu.

„Það er spennandi sumar framundan hjá Val. Við erum með unga leikmenn sem við höfum gríðarlega trú á. Það eru nokkrir að koma úr meiðslum og einhverjir eru meiddir. Við fáum nokkra ferska unga inn sem við höfum mikla trú á.

Valur er stór klúbbur og við vitum að það eru væntingar og kröfur. Fyrst og fremst förum við í hvern einasta fótboltaleik til að vinna hann. Svo sjáum við hvert það tekur okkur. En við þurfum að vera raunsæir líka, það eru önnur frábær lið í deildinni. Deildin er sterkari en nokkru sinni áður.“

Ítarlega er rætt við Hermann í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Í gær

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á
Hide picture