fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Katla dvaldi á spítala í viku – „Þetta voru bólgur og sýking í nýra, ekki næs“

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katla Tryggvadóttir snýr aftur í landsliðið í komandi leikjum gegn Úkraínu og Englandi í undankeppni HM en hún glímdi við veikindi þegar liðið mætti Spáni og Englandi í síðasta glugga.

Leikirnir framundan eru afar mikilvægir, sér í lagi gegn Úkraínu þar sem liðin berjast um þriðja sæti riðilsins, sem gæti haft mikla þýðingu upp á framhaldið í umspil um sæti á HM.

video
play-sharp-fill

„Við byrjum á Úkraínu og þurfum að sækja þrjú stig, þetta eru mjög mikilvægir leikir,“ sagði Katla á landsliðsæfingu á Þróttarvelli.

Veikindi Kötlu í síðasta mánuði voru ekkert grín.

„Ég er bara hress, alveg orðin góð. Þetta var vika á spítalanum en svo kom ég heim til Íslands í fimm daga og jafnaði mig. Þetta voru bólgur og sýking í nýra, ekki næs en ég er orðin góð.“

Katla gekk í raðir ítalska stórliðsins Fiorentina í sumar eftir að hafa slegið í gegn með Kristianstad í Svíþjóð.

„Lífið er gott þarna, mér líður vel í Flórens, topp, topp aðstaða. Ég fékk Hlín (Eiríksdóttur) til mín sem var mjög gott.“

Nánar er rætt við Kötlu í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Í gær

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á
Hide picture