fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Svona fengi England ellefu Evrópusæti á næstu leiktíð

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 21:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú óvanalega staða gæti komið upp að enska úrvalsdeildin eigi ellefu fulltrúa í Evrópukeppnum á komandi leiktíð.

Það varð ljóst með sigri Arsenal á Sporting á þriðjudag að England fengi auka sæti í Meistaradeildina, það fimmta í ensku úrvalsdeildinni.

Þá fara tvö lið í Evrópudeildina og eitt í Sambandsdeildina, en það sem gæti flækt málið er ef ensk lið vinna Evrópukeppnir í vor án þess að vinna sér inn sæti í þeim í gegnum deildina samhliða.

Liverpool er til að mynda enn með í Meistaradeildinni, þó liðið sé í snúinni stöðu og 2-0 undir gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain eftir fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum.

Liðið er jafnframt alls ekki öruggt með að hreppa eitt af fimm efstu sætum deildarinnar.

Það sama má segja um Nottingham Forest og Crystal Palace. Bæði lið eru enn með í Evrópu- og Sambandsdeildinni en eru aftur á móti í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar.

Sigur í Evrópudeildinni veitir sæti í Meistaradeildinni og sigur í Sambandsdeildinni sæti í Evrópudeildinni.

Það verður að teljast ólíklegt að allt þetta gangi upp og England tryggi sér ellefu Evrópusæti, en mögulegt þó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Í gær

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á