fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Algjört óveðurský í rekstrinum í Árbæ: Mígandi tap á síðasta ári – Tekjur hrundu en launagreiðslur stóðu í stað

433
Mánudaginn 9. mars 2026 20:00

Björn Viðar Ásbjörnsson nýr verkefnastjóri knattspyrnudeildar Fylkis og Heimir Guðjónsson nýr þjálfari Fylkis taka við erfiðu búi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er þungur róður þegar kemur að rekstrinum hjá knattspyrnudeild Fylkis. Þetta kemur fram í nýjasta ársreikning félagsins. Ljóst er að reksturinn er ekki sjálfbær um þessar mundir og er uppsafnað tap 124 milljónir á síðustu fimm árum.

Rekstur knattspyrnudeildar hefur verið þungur eftir að karlaliðið féll úr efstu deild haustið 2024. Tekjur sem koma vegna veru liðsins í efstu deild eru í kringum 50-70 milljónir og skýrast aðallega af sjónvarpssamningum og greiðslum frá UEFA vegna árangurs íslenskra liða í Evrópukeppni. Tap varð af rekstri deildarinnar á rekstrarárinu að fjárhæð 71 m.kr.

Til að mæta framangreindum tekjusamdrætti lagði aðalstjórn félagsins knattspyrnudeildinni til um 48 m. kr. alls á árinu í formi eiginfjárframlags til að styðja við rekstur deildarinnar. Eigið fé í lok ársins var neikvætt um -5.843 þús.kr. skv. efnahagsreikningi.

Tekjur deildarinnar voru 240 milljónir á síðasta ári, var það rúmlega 80 milljón króna lækkun frá árinu þar á undan.

Þrátt fyrir mikla lækkun á tekjum var varla neitt dregið úr útgjöldum sem voru á síðasta ári 310 milljónir og lækkuðu aðeins um sex milljónir á milli ára.

Líklegt er að Fylkir hafi ákveðið að taka séns til að reyna að koma karlaliðinu beint aftur í efstu deild því launagreiðslur lækkuðu aðeins um 2 milljónir á milli ára og voru 201 milljón á síðasta ári, liðið var í fallbaráttu í Lengjudeild karla síðasta sumar og kvennaliðið féll úr Lengjudeildinni. Verktakagreiðslur til leikmanna voru 48 milljónir og hækka um tvær milljónir á milli ára.

Skammtímaskuldir deildarinnar eru 21 milljón og þar á meðal er yfirdráttur fyrir 5 milljónir.

Meira:
Ársreikningur Víkings vekur mikla athygli – Gríðarlegt tap á síðasta ári en staðan sterk
Rosaleg skuldastaða í Eyjum vekur enn á ný athygli – Tekjur jukust hressilega á milli ára
Rosaleg tekjuaukning í Vesturbæ með tilkomu Óskars Hrafns – Útgjöld jukust um 120 milljónir á síðasta ári
Jafnvægi í rekstrinum í Úlfarársdal: Tekjur lækkuðu og útgjöld jukust til muna – Samt var hagnaður á rekstri
Svart ský yfir rekstrinum í Garðabæ: Laun hækkuðu rosalega – Tapið á síðasta ári yfir 80 milljónir
Blómlegur rekstur á Hlíðarenda: Aukning í tekjum og góður hagnaður – Laun hækka talsvert á milli ára
Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Elías hefur litlar áhyggjur af því að vera á útivelli í úrslitaleiknum – „Við þurfum að fá fólkið okkar þangað“

Elías hefur litlar áhyggjur af því að vera á útivelli í úrslitaleiknum – „Við þurfum að fá fólkið okkar þangað“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ungar stjörnur í miklum vandræðum vegna kynferðislegs myndbands með konu – Málið til rannsóknar

Ungar stjörnur í miklum vandræðum vegna kynferðislegs myndbands með konu – Málið til rannsóknar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Horfa til framherja Tottenham – Líklega einfalt að fá hann ef liðið fellur

Horfa til framherja Tottenham – Líklega einfalt að fá hann ef liðið fellur
433Sport
Í gær

Tyrkirnir ætla ekki að borga uppsett verð

Tyrkirnir ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Í gær

Vilja ræða nýjan og betri samning þrátt fyrir vandræði innan vallar

Vilja ræða nýjan og betri samning þrátt fyrir vandræði innan vallar
433Sport
Í gær

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar
433Sport
Í gær

Útsendarar Real Madrid mættu til að fylgjast með Tonali

Útsendarar Real Madrid mættu til að fylgjast með Tonali