fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
433Sport

Fyrirtæki hans úrskurðað gjaldþrota

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 8. mars 2026 12:30

Jesse Lingard / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtæki sem sér um ímyndarréttindi Jesse Lingard, fyrrverandi leikmanns Manchester United, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eftir að hafa safnað upp miklum skuldum.

Fyrirtækið, JL Commercial Limited, var úrskurðað gjaldþrota af dómstólum eftir að hafa ekki greitt skuldir sem nema um 1,6 milljónum punda. Málið var tekið fyrir í Hæstarétti í Englandi eftir að lögfræðistofan Pinsent Masons lagði fram kröfu um slit á fyrirtækinu vegna vangoldinna reikninga.

Lingard, sem er 33 ára gamall, stofnaði fyrirtækið árið 2018 til að halda utan um viðskiptaverkefni sín og vörumerki. Þar á meðal voru vörumerki tengd JLingz-fatalínunni hans og fræga markfagninu sem hann gerði þekkt á ferlinum.

Miðjumaðurinn skráði meðal annars vörumerki sem ná yfir fatnað, skó, hatta og sjálft markfagnið.

Lingard varð þekktur sem leikmaður Manchester United þar sem hann lék fjölda leikja fyrir félagið og vann meðal annars bikartitla með liðinu áður en hann hélt síðar til annarra félaga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sögusagnir um agabann eftir að hann fór að sænga hjá dóttur yfirmanns

Sögusagnir um agabann eftir að hann fór að sænga hjá dóttur yfirmanns
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tölvupóstur yfirmanns lekur út – „Tak fyrir þennan fallega póst, hoppaðu nú upp í rassgatið á þér“

Tölvupóstur yfirmanns lekur út – „Tak fyrir þennan fallega póst, hoppaðu nú upp í rassgatið á þér“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þrjú ensk stórlið og PSG á eftir 100 milljón punda manninum

Þrjú ensk stórlið og PSG á eftir 100 milljón punda manninum
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Vilja ekki hleypa honum til Manchester

Vilja ekki hleypa honum til Manchester
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum