fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
433Sport

Xavi vildi leikmanninn sem hefur slegið í gegn með Arsenal – Yfirmennirnir sögðu hann of dýran

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. mars 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Xavi, fyrrum stjóri Barcelona, segir að stjórn félagsins hafi hafnað ósk hans um að fá miðjumanninn Martin Zubimendi til liðs við félagið.

Xavi vildi fá Zubimendi sem arftaka Sergio Busquets, sem yfirgaf Barcelona árið 2023 og gekk til liðs við Inter Miami.

Á þeim tíma lék Zubimendi með Real Sociedad, en samkvæmt Xavi taldi stjórn Barcelona hann of dýran. Félagið ákvað þess í stað að fá Ilkay Gundogan á frjálsri sölu frá Manchester City og keypti Oriol Romeu frá Girona.

Zubimendi var áfram hjá Sociedad þar til síðasta sumar þegar hann gekk til liðs við Arsenal fyrir um 51 milljón punda. Þar hefur hann byrjað vel og er lykilmaður í toppliði ensku úrvalsdeildarinnar.

Xavi fór mikinn í þessu viðtali og sagði einnig að forseti Börsunga, Joan Laporta, hafi komið í veg fyrir endurkomu Lionel Messi til félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum
433Sport
Í gær

Er að skrifa undir nýjan samning

Er að skrifa undir nýjan samning