fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
433Sport

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. mars 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi enski landsliðsframherjinn Emile Heskey hefur flækst inn í stórt lögfræðimál sem tengist meintu sviksamlegu viðskiptasamkomulagi um knattspyrnufélag á Kýpur.

Heskey, sem er ekki sakaður um neitt misferli, var áberandi andlit í áformum breska fjárfestisins Craig Gabriel um að kaupa hlut í kýpverska félaginu Apollon Limassol. Gabriel hafði lofað að leggja um 15 milljónir punda inn í félagið og var kynntur sem mögulegur bjargvættur þess.

Heskey og Gabriel heimsóttu félagið í ágúst á síðasta ári þar sem þeir hittu bæði stjórnendur og stuðningsmenn. Heskey gekk einnig út á völlinn á heimavelli félagsins, sem tekur um 10.000 áhorfendur.

Samkvæmt enskum blöðum var gert ráð fyrir að Heskey tæki við starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu þegar samningnum yrði lokið.

Í dómsgögnum kemur fram að Gabriel hafi sagt stjórnendum félagsins að eigið fé hans næmi nærri 500 milljónum punda. Samningurinn gekk hins vegar ekki eftir og nú hefur Apollon Limassol höfðað mál gegn Gabriel fyrir dómstólum á Kýpur og krefst um 8 milljóna punda í skaðabætur.

Einnig hefur verið höfðað mál í Hæstarétti í Bretlandi. Þó Heskey sé ekki sakaður um neitt vilja lögmenn félagsins ræða við hann um þátt hans í málinu og hvað Gabriel sagði honum á meðan viðræðurnar stóðu yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum
433Sport
Í gær

Er að skrifa undir nýjan samning

Er að skrifa undir nýjan samning