

Það er talið mjög ólíkegt að Erling Haaland muni spila með Manchester City í næsta leik gegn Nottingham Forest.
Haaland var ekki með um helgina er City spilaði við Leeds og vann 0-1 sigur og er tveimur stigum á eftir Arsenal sem er á toppnum.
Allar líkur eru á að Haaland verði frá í dágoðan tíma sem er áfall fyrir City en hann er þeirra helsti markaskorari og leiðir fremstu línuna.
Haaland er ekki þekktur fyrir það að vera mikið meiddur en hann hefur spilað 27 deildarleiki á tímabilinu og skorað í þeim 22 mörk.
Hversu alvarleg meiðslin eru er ekki vitað að svo stöddu en miðað við færslu Haaland á samskiptamiðlum þá vonast hann til að ná næsta leik sem er þó ólíklegt.