fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Guardiola verulega ósáttur og segir fyrirkomulagið óréttlátt

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 12:30

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur gagnrýnt fyrirkomulag og tímasetningu úrslitaleiks deildabikarsins gegn Arsenal sem fram fer á Wembley í mars. City tryggði sér sæti í úrslitunum með öruggum sigri gegn Newcastle í undanúrslitum.

Eftir sigurinn benti Guardiola á að City þyrfti enn á ný að ferðast suður til Lundúna í úrslitaleik, líkt og oft áður. „Við þurfum alltaf að ferðast. Andstæðingarnir koma aldrei norður fyrir svona leiki,“ sagði hann í viðtali eftir leikinn.

Guardiola lofaði einnig Arsenal og sagði gott fyrir sitt lið að mæta svo ógnarsterku liði. „Það er ánægjulegt að spila gegn þeim, en ég vona bara að leikmennirnir mínir verði heilir og til taks.“ 

Spánverjinn hefur ítrekað lýst áhyggjum af álagi, ferðalögum og stuttum undirbúningstíma fyrir leiki undir lok tímabils, sérstaklega þegar liðið keppir á mörgum vígstöðvum. Mikilvægt verði að halda lykilmönnum heilum fram að úrslitaleiknum.

Manchester City og Arsenal mætast í úrslitaleik deildabikarsins á Wembley 22. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá