fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fyrrum unnusta Ronaldo segir frá því hvað gerðist þegar þau hættu saman – Hefði getað náð sér í fullt af peningum en vildi það ekki

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi kærasta Cristiano Ronaldo, enska fyrirsætan og leikkonan Gemma Atkinson, hefur rifjað upp samband þeirra og upplýst að henni hafi verið boðnar háar fjárhæðir til að tala illa um portúgalska stórstjörnuna eftir að þau hættu saman.

Atkinson og Ronaldo voru saman um tíma árið 2007 þegar hann lék með Manchester United. Samband þeirra vakti mikla athygli á sínum tíma, en hún segir að það hafi í raun verið mun eðlilegra en margir halda.

„Þegar við hættum saman var mér boðið mjög mikið af peningum fyrir að tala um hann,“ sagði Atkinson.

Ég vildi það ekki því það var ekkert neikvætt við hann, þannig að ég sá enga ástæðu til að segja slæma hluti.“

Getty Images

Hún lýsti Ronaldo einnig sem jarðbundnum og rólegum einstaklingi utan vallar. „Við fórum heim til mín, drukkum te og horfðum á Only Fools and Horses. Í alvöru! Ég veit ekki hvort hann hefur enn áhuga á því en hann virtist njóta þess.“

Atkinson segir að sambandið hafi einfaldlega runnið sitt skeið og að þau hafi skilið á góðum nótum. Hún hafi því aldrei séð ástæðu til að nýta sér frægð hans til að hagnast á sambandinu eftir á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá