fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hallgrímur Mar framlengir við KA – Einn besti leikmaður í sögu félagsins

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. febrúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027.

„Eru þetta ákaflega jákvæðar fréttir enda hefur Grímsi skrifað sögu knattspyrnudeildar KA upp á nýtt en hann er leikjahæsti leikmaður í sögu félagins með 378 leiki í deild, bikar, Evrópu og meistarakeppni KSÍ. Hann er einnig markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 125 mörk,“ segir á vef KA.

Þá er hann leikjahæsti leikmaður KA í efstu deild með 209 leiki auk þess að vera markahæsti leikmaður KA í efstu deild með 75 mörk. Enn eitt metið setti hann í sumar er hann varð markahæsti leikmaður KA í Evrópu en hann hefur nú gert 4 mörk í 8 Evrópuleikjum, en enginn hefur leikið fleiri Evrópuleiki fyrir KA.

Kappinn er uppalinn hjá Völsung á Húsavík en kom átján ára til liðs við KA fyrir sumarið 2009. Síðan þá hefur hann verið algjör lykilmaður í liði KA og í þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan liðsins er liðið fór úr því að leika í næstefstu deild í að festa sig í sessi Bestudeildarinnar, verða Bikarmeistari og leika í Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá