

Fyrrverandi leynilögreglumaður hefur rifjað upp átakanlega reynslu sína frá níunda og tíunda áratugnum þegar vandamál er varðar fótboltabullur var í hámarki.
Maðurinn, sem heitir James Bannon, lýsti því meðal annars hvernig hann þurfti að sitja hjá þegar saklaus stuðningsmaður Crystal Palace var barinn fyrir framan eiginkonu sína og börn í lestarferð.
Bannon var aðeins 21 árs þegar hann var settur inn í Millwall-stuðningsmannahópinn Bushwackers árið 1987 sem hluti af rannsókn. Hann þóttist vera málari og undir fölsku flaggi komst hann inn í hópinn.
Í viðtali segir hann að maður úr hópnum hafi ráðist á stuðningsmann Palace án tilefnis. „Börnin öskruðu, eiginkonan grét og maðurinn lá blóðugur á jörðinni,“ sagði Bannon, sem viðurkenndi að hann hafi viljað handtaka árásarmanninn, en óttaðist að afhjúpa sig og eyðileggja aðgerðina.
Slíkar leyniaðgerðir voru algengar á þessum tíma til að stemma stigu við ofbeldi sem tengdist knattspyrnu. Í dag er slíkt ofbeldi mun sjaldgæfara vegna aukins öryggis og eftirlits á leikdögum.