fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Alonso sér fyrir sér að umbylta leikmannahópi Liverpool taki hann við – Salah og Van Dijk yrðu seldir

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Xabi Alonso er sagður vilja gera miklar breytingar á liði Liverpool, taki hann við sem stjóri. Liverpool situr nú í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar og hefur ekki unnið deildarleik síðan í lok desember. Það er því að hitna undir Arne Slot.

Samkvæmt spænska miðlinum Fichajes er Alonso efstur á óskalista Liverpool fari svo að Slot verði látinn taka pokann sinn. Alonso, sem lék í fimm ár með félaginu, var rekinn frá Real Madrid á dögunum en þar áður hafði hann gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen.

Í fréttinni kemur fram að Alonso vilji fá fjóra nýja leikmenn til félagsins, þar á meðal varnarmanninn Micky van de Ven frá Tottenham sem arftaka Virgil van Dijk. Á miðjuna er Adam Wharton hjá Crystal Palace sagður efstur á blaði, en í sóknina vill Alonso fá bæði Bradley Barcola frá PSG og Michael Olise frá Bayern Munchen.

Til að fjármagna kaupin er Alonso sagður tilbúinn að láta fimm leikmenn fara, þar á meðal Ibrahima Konate, Alexis Mac Allister, Ryan Gravenberch, Cody Gakpo og Mohamed Salah.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá