fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir umboðsmanninn eiga safn af myndum eftir að hafa lamið hana og nauðgað – Segir hann hafa hótað að drepa alla fjölskylduna

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 07:30

Jonathan Barnett lengst til hægri Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnuumboðsmaðurinn Jonathan Barnett, einn þekktasti og áhrifamesti umboðsmaður heims, hefur verið sakaður um grófa misnotkun á konu sem hann á að hafa haldið sem kynlífsþræli í allt að sex ár.

Barnett, sem meðal annars kom Gareth Bale til Real Madrid í ein stærstu félagaskiptum sögunnar, neitar öllum ásökunum.

Í einkamáli sem lagt hefur verið fram í Kaliforníu heldur konan, sem er aðeins nefnd Jane Doe og er frá Ástralíu, því fram að Barnett hafi nauðgað henni oftar en 39 sinnum á árunum 2017 til 2023 og beitt hana bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hún segir hann einnig hafa hótað að drepa fjölskyldu hennar, sem valdi því að hún lifi enn í stöðugum ótta.

Barnett lengst t.v

Samkvæmt kærunni beitti Barnett henni algjörri stjórn, setti henni strangar reglur og þvingaði hana til kynlífsathafna, sjálfsskaða og annarra niðurlægjandi verka. Þá er því haldið fram að hann hafi látið hana leita að fleiri konum til kynlífsmisnotkunar í Los Angeles. Í gögnum málsins eru meðal annars WhatsApp-skilaboð sem eiga að sýna Barnett kalla konuna „þræl“ sinn.

Í ærunni segir ennfremur. „Hann neyddi mig til að vinna í þjónustu fyrir sig og hafði algjöra stjórn á lífi mínu með ýmsum aðferðum, þar á meðal með andlegu og líkamlegu ofbeldi.“

Konan heldur því jafnframt fram að Barnett hafi enn aðgang að fjölda myndbanda af henni þar sem hún er látin framkvæma „niðurlægjandi athafnir og sjálfsskaða“.

Hún segir. „Hann heldur einnig utan um safn ljósmynda sem hann krafðist þess að ég tæki af sjálfri mér eftir að hann hafði barið mig, nauðgað mér og sært mig ítrekað.“

Lögmaður Doe segir að hún hafi ítrekað grátbeðið Barnett um að hætta sársaukafullu ofbeldinu, en hann hafi neitað.

Barnett, sem er 75 ára gamall, er einnig til rannsóknar í Bretlandi vegna málsins. Hann hefur barist gegn kærunni fyrir dómstólum í Bandaríkjunum og heldur því fram að dómstólar þar hafi ekki lögsögu, þar sem sambandið hafi að mestu átt sér stað í London.

Einnig er Creative Artists Agency (CAA), móðurfélag fyrrverandi fyrirtækis Barnett, nefnt í kærunni. Konan heldur því fram að Barnett hafi misnotað stöðu sína innan fyrirtækisins til að misnota varnarlausar konur. CAA og Barnett hafna öllum ásökunum og neita að hafa gerst sek um lögbrot.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá