
Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var spurður út í orðróma um að Xabi Alonso gæti tekið við starfi hans á Anfield eftir erfitt tímabil hjá Englandsmeisturunum.
Slot leiddi Liverpool til Englandsmeistaratitils á sínu fyrsta tímabili eftir að hafa tekið við af Jurgen Klopp, en gengi liðsins hefur verið mun lakara á þessu tímabili.
Alonso var sterklega orðaður við Liverpool sumarið 2024 en ákvað þá að vera áfram hjá Bayer Leverkusen. Hann tók síðar við Real Madrid en var rekinn í síðustu viku eftir innan við sjö mánuði í starfi.
„Hann hringdi í mig og sagðist taka við eftir sex mánuði, nei, nei,“ sagði Slot léttur í bragði við spurningunni.
„Þetta er ein skrýtnasta spurning sem ég hef fengið. Ég er búinn að vera hér í 18 mánuði, vann deildina og nýt þess að vinna hér,“ sagði Slot enn fremur.