fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Misboðið yfir aðförinni að séra Friðriki og stofna samtök – „Með ólíkindum hve lítið þarf til að fella löngu liðna menn án dóms og laga“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Hilmarsson, fyrrum landsliðsmaður og Valsari, hvetur stuðningsmenn félagsins til að koma á stofnfund samtaka sem sett eru á laggirnar vegna ósættis við meðferðina á séra Friðriki Friðrikssyni í kjölfar ásakanna á hendur honum.

Séra Friðrik fæddist 1868 og lést 1961. Hann stofnaði meðal annars KFUM og KFUK á Íslandi og einnig íþróttafélögin Val og Hauka. Hann var áhrifamikill í íslensku samfélagi og helgaði krafta sína einna helst æskulýðsstarfi en þó fremur með drengjum en stúlkum. Í bókinni Séra Friðrik og drengirnir hans eftir Guðmund Magnússon sem kom út 2023 er því hins vegar haldið fram að Friðrik hafi brotið kynferðislega á drengjum.

Í kjölfarið lét stjórn KFUM og KFUK kanna málið og eftir þá rannsókn gaf stjórnin út yfirlýsingu þar sem kom fram að borist hefðu vitnisburðir um brot séra Friðriks og voru þolendur hans beðnir afsökunar. Styttan af séra Friðrik, sem bar heitið Séra Friðrik og drengirnir hans og hafði staðið við Lækjargötu frá því á sjötta áratug síðustu aldar, var í kjölfarið fjarlægð.

Margir hafa þó lýst ósætti við meðferðina á minningu séra Friðriks og Hörður gerir það nú. „Réttlætiskennd fjölda Valsmanna var misboðið við aðförina að FF. Það er með ólíkindum hve lítið þarf til að fella löngu liðna menn án dóms og laga. M.a. þess vegna er verið að stofna félag til að gæta réttar slíkra aðila. Tilgangur félagsins er að vinna að æruvernd alls fólks lifandi og látins og endurreisa mannorð séra Friðriks Friðrikssonar ásamt því að styðja við kristna trú og kristileg gildi,“ segir til að mynda í færslu hans í stuðningsmanna hópi Vals.

Þar kemur einnig fram að samtökin munu heita Æruvernd og fer stofnfundurinn fram á sunnudag.

Færslan í heild
Kæru Valsmenn,

Mér og mörgum öðrum Valsmönnum mislíkar mjög meðferðin sem stofnandi Vals, séra Friðrik Friðriksson fékk fyrir um tveimur árum frá Val, KFUM og samfélaginu. Algerlega ósannaður atburður á hendur mesta æskulýðsleiðtoga Íslands á fyrri hluta 20. aldar varð til þess að séra Friðrik var tekinn af stalli í orðsins fyllstu merkinu, bæði stytta af honum í Lækjargötu og brjóstmynd á Hlíðarenda. Réttlætiskennd fjölda Valsmanna var misboðið við aðförina að FF. Það er með ólíkindum hve lítið þarf til að fella löngu liðna menn án dóms og laga. M.a. þess vegna er verið að stofna félag til að gæta réttar slíkra aðila. Tilgangur félagsins er að vinna að æruvernd alls fólks lifandi og látins og endurreisa mannorð séra Friðriks Friðrikssonar ásamt því að styðja við kristna trú og kristileg gildi.

Ég hver Valsmenn til að koma á stofnfund samtakanna Æruvernd, kynna sér málið og gerast stofnfélagar, ef þeim sýnist svo. Fundurinn verður í Safnaðarheimili Kópavogskirkju sunnudaginn 23. janúar kl. 14:00.

Með Valskveðju,
Hörður Hilmarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá