
Argentínumenn getur andað léttar því meiðsli Lionel Messi, sem hann varð fyrir í leik með Inter Miami um helgina, virðast ekki alvarleg.
Aðeins um þrjár vikur eru í HM svo það olli eðlilega áhyggjum þegar Messi þurfti að fara af velli.
Inter Miami hefur hins vegar staðfest að fyrstu rannsóknir á meiðslunum sýni tognun aftan í vinstra læri. Samkvæmt argentínskum miðlum verður hann líklega aðeins frá í um tíu daga.
Guillermo Hoyos, þjálfari liðsins, sagði eftir leik að Messi hefði verið orðinn mjög þreyttur og því hafi ekki verið tekin nein áhætta með hann.
Argentína hefur leik á HM þann 17. júní gegn Alsír. Austurríki og Jórdan eru einnig í sama riðli.
Þess má geta að Messi og félagar mæta Íslandi í síðasta leik fyrir mót aðfaranótt 10. maí.