fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
433Sport

Magnús Haukur tætir Jóhannes og Davíð Þór í sig og lætur þungar fullyrðingar falla – „Þetta er bara kjaftæði og þessi yfirlýsing er til skammar“

433
Mánudaginn 18. maí 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er afar neikvæð ára yfir FH þessa dagana, en liðið er í fallsæti og fjórum stigum frá öruggu sæti í Bestu deild karla eftir sjö umferðir. Þá féll liðið úr leik í bikarnum með 5-0 tapi gegn Lengjudeildarliði Fylkis á dögunum.

Magnús Haukur Harðarson, þjálfari og sparkspekingur, var ómyrkur í máli um stöðu liðsins í Innkastinu á Fótbolta.net. Magnús er sonur FH-goðsagnarinnar Harðar Magnússonar og þar af leiðandi mikill stuðningsmaður liðsins. Honum líst þó ekkert á það sem hann sér þessa dagana. „Það er bara vont að horfa á þetta,“ sagði hann einfaldlega í þættinum.

Jóhannes Karl er fyrrum þjálfari ÍA.

Jóhannes Karl Guðjónsson var ráðinn þjálfari FH í vetur og var ráðist í miklar breytingar á leikmannahópnum og mikið talað um nýja stefnu félagsins. Heimir Guðjónsson hafði gert frábærlega með liðið síðustu þrjú tímabil eftir að hann sneri aftur. Það var hins vegar ákveðið að endurnýja ekki samninginn við hann eftir síðustu leiktíð.

„Ég er búinn að fara fram og til baka með ráðninguna á Jóa Kalla. Ég setti fram í vikunni að hann hafi stútað liði uppi á Akranesi. Þá er ég ekki að tala um árangurinn heldur innan frá, þar rúlluðu í gegn 45-50 leikmenn á þeim tíma sem hann er þar og hann hunsar yngri flokka starfið uppi á Skaga á sama tíma. Ef þú spyrð Skagamenn hvað þeim finnst um hans tíma uppi á Skaga, það var enginn að óska eftir því að hann kæmi aftur þegar þá vantaði þjálfara í fyrra,“ sagði Magnús, en Jóhannes stýrði ÍA frá 2018 til 2021, áður en hann gerðist aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins og síðar þjálfari AB í dönsku C-deildinni.

Magnús virtist einnig skjóta á Davíð Þór Viðarsson, yfirmann knattspyrnumála hjá FH.

Böðvar Böðvarsson. Mynd: DV/KSJ

„Ég er kominn að þeirri niðustöðu að hann hafi selt FH eitthvað verkefni. Ég veit að menn eru ekkert duglegastir að mæta til vinnu þarna uppi í Kaplakrika. Ég ætla ekkert að fara að tala um yfirmann knattspyrnumála neitt sérstaklega hérna. En á sama tíma er þetta rosalega furðulegt. Það er talað um einhverjar pressutölur og að minnka meðalaldurinn, sem hefur vissulega tekist, enda var mönnum bara ýtt þarna í burtu og alls konar leikmenn fengið mínútur, eins og Benjamín sem er gott.“

Magnús furðar sig einnig á hegðun þjálfarans á meðan leik stendur.

„Hann er allan leikinn á hliðarlínunni eins og hann sé að spila FIFA. Ég er að þjálfa 3. flokk og ég stend ekki gargandi allan leikinn. Ég er búinn að leggja upp leikinn fyrirfram. Þetta stingur mig ofboðslega. Þú sérð engan þjálfara garga svona allan leikinn og þetta segir mér að skipulagið sé ekki í lagi. Leik eftir leik erum við að sjá þetta. Og hann hefur engin svör.“

Kári Kristjánsson. Mynd: Þróttur R.

FH er sem fyrr segir í slæmum málum, í fallsæti, en Magnús telur ekki að hægt verði að bjarga tímabilinu í félagaskiptaglugganum í júlí.

„Í hvaða aðstöðu ætla þeir að vera þegar glugginn opnar? Því trúið mér, það er ekki til peningur til að sækja 5-6 leikmnenn í glugganum. Menn hafa talað um KR í fyrra. KR sótti KR-inga og stækkuðu hópinn sinn. FH hefur losað sig við FH-inga, Böðvar Böðvarsson, Einar Karl Ingvarsson, Jóhann Ægi, Dag Traustason, Ísak Atla, fyrir hvern er þetta?“

Magnús skaut einnig harkalega á sína menn fyrir hvernig málum var háttað varðandi Kára Kristjánsson. FH keypti hann í vetur en seldi aftur til Þróttar á dögunum. Davíð Þór virtist einnig gagnrýna hugarfar Kára í yfirlýsingu sem FH seldi frá sér eftir söluna á honum.

„Hvernig klúðrar þú því? Þú selur leikmanni verkefni og hlutverk hans sést á undirbúningstímabilinu. Svo þegar tímabilið hefst er hann allt í einu mættur á kantinn. Svo fer hann á fund og fær engin svör um hvað er í gangi. Þetta er bara kjaftæði og þessi yfirlýsing frá Davíð varðandi Kára er til skammar,“ sagði Magnús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Haaland að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndaheiminum

Haaland að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndaheiminum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nýtt útlit á unnustu Ronaldo vekur mikla athygli – Brúðkaupið fer fram í sumar

Nýtt útlit á unnustu Ronaldo vekur mikla athygli – Brúðkaupið fer fram í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Breiðablik heldur styrktarleik til stuðnings Minningarsjóðs Bryndísar Klöru

Breiðablik heldur styrktarleik til stuðnings Minningarsjóðs Bryndísar Klöru
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Reynir að róa stuðningsmenn fyrir úrslitaleikinn

Reynir að róa stuðningsmenn fyrir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Rooney baunar á Salah og hvetur Slot til að hafa hann utan hóps

Rooney baunar á Salah og hvetur Slot til að hafa hann utan hóps
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Liverpool fær harða samkeppni og gæti misst af arftakanum

Liverpool fær harða samkeppni og gæti misst af arftakanum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Furðuleg uppákoma í Brasilíu og Neymar trylltist – Myndband

Furðuleg uppákoma í Brasilíu og Neymar trylltist – Myndband
433Sport
Í gær

Beraði óvart brjóstin í beinni útsendingu – „Ég tók ekki eftir þessu!“

Beraði óvart brjóstin í beinni útsendingu – „Ég tók ekki eftir þessu!“
433Sport
Í gær

Arsenal, Liverpool og Manchester United á eftir sama leikmanninum

Arsenal, Liverpool og Manchester United á eftir sama leikmanninum