

José Mourinho er samkvæmt erlendum miðlum á leið aftur til Real Madrid, þrettán árum eftir stormasama brottför sína frá spænska stórveldinu.
Portúgalski stjórinn, sem stýrir nú Benfica í heimalandinu, hefur að sögn samþykkt að taka aftur við Real Madrid eftir erfitt tímabil hjá félaginu. Real féll snemma úr Meistaradeildinni og varð að horfa upp á Barcelona tryggja sér spænska meistaratitilinn.
Mourinho mun því snúa aftur á Santiago Bernabéu þrátt fyrir gagnrýni frá fyrrum leikmönnum félagsins, þar á meðal markvarðargoðsögninni Iker Casillas. Casillas sagði nýlega að hann teldi Mourinho frábæran fagmann en ekki réttan mann fyrir Real Madrid.
Benfica lauk tímabilinu í Portúgal um helgina með 3-1 sigri á Estoril og fór í gegnum deildarkeppnina án taps. Eftir leikinn gaf Mourinho sterklega í skyn að framtíð hans yrði ráðin á næstu dögum.
„Ég þarf tíma og svigrúm til að taka ákvörðun. Þessi vika verður mjög mikilvæg,“ sagði Mourinho.
Hann neitaði þó að hafa rætt beint við Real Madrid en gaf í skyn að umboðsmaður hans Jorge Mendes væri að vinna að málinu.
Samkvæmt fréttum getur Real Madrid keypt Mourinho út úr samningi hans við Benfica fyrir um 2,6 milljónir punda á næstu dögum.