
Arsenal gæti neyðst til að selja Fabio Vieira á lægra verði en félagið hafði vonast eftir í sumar.
Portúgalski miðjumaðurinn hefur verið á láni hjá Hamburg á tímabilinu og staðið sig vel, er með sjö mörk og sex stoðsendingar í 31 leik.
Þrátt fyrir það segir Football London að þýska félagið ætli ekki að virkja kauprétt sinn upp á rúmar 19 milljónir punda.
Hamburg er þó áfram áhugasamt um að halda Vieira og er sagt tilbúið að bjóða um 8,7 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Vieira kom til Arsenal frá Porto árið 2022 fyrir um 34 milljónir punda en náði aldrei að festa sig almennilega í sessi hjá Mikel Arteta.
Samningur hans við Arsenal rennur út árið 2027.