
Leikmenn á HM í sumar gætu fengið rautt spjald ef þeir hylja munninn þegar þeir tala við andstæðinga sína.
FIFA hefur samþykkt þessar reglur, en eiga þær aðeins við þegar um átök milli leikmannahópanna er að ræða, rifrildi eða slíkt.
Markmiðið er að sporna gegn ósæmilegri hegðun, meðal annars kynþáttaníði. Rökin eru að leikmenn ættu ekki að þurfa að hylja mun sinn nema þeir hafi eitthað að fela.
Dómarar munu svo meta hvert atvik fyrir sig.
HM í sumar fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og hefst þann 11. júní.