fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
433Sport

Beckham og Victoria vekja athygli – Senda afmæliskveðjur á son sinn sem vill ekkert með þau hafa

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David og Victoria Beckham sendu syni sínum Brooklyn afmæliskveðjur á samfélagsmiðlum þrátt fyrir ágreining innan fjölskyldunnar.

Brooklyn, sem er elsti sonur fyrrum Manchester United-stjörnunnar David Beckham og fyrrum Spice Girls söngkonunnar Victoria Beckham, vakti mikla athygli í janúar þegar hann birti langa færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann gagnrýndi foreldra sína.

Þar hélt hann því meðal annars fram að þau hefðu reynt að skemma samband hans við eiginkonu hans, Nicola Peltz, sem hann giftist árið 2022.

Síðan þá hefur verið talið að samskipti Brooklyn við foreldra sína hafi verið lítil sem engin, en hann býr ásamt eiginkonu sinni í Beverly Hills í Kaliforníu.

Þrátt fyrir þetta sendu bæði David og Victoria honum opinberar afmæliskveðjur þegar hann varð 27 ára. David birti gamla mynd af fjölskyldunni í sundlaug og skrifaði. „27 í dag. Til hamingju með afmælið, Bust. Við elskum þig.“

Victoria birti einnig myndir af sér og syni sínum og skrifaði. „Til hamingju með afmælið Brooklyn, við elskum þig svo mikið.“

Brooklyn hefur enn ekki svarað kveðjunum opinberlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Faðirinn tjáir sig um stöðu leikmanns Liverpool

Faðirinn tjáir sig um stöðu leikmanns Liverpool
433Sport
Í gær

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku
433Sport
Í gær

Sjónvarpskonan sem nú stelur sviðsljósinu – Var áður þjónn og fasteignasali

Sjónvarpskonan sem nú stelur sviðsljósinu – Var áður þjónn og fasteignasali
433Sport
Í gær

Góð tíðindi úr herbúðum Liverpool

Góð tíðindi úr herbúðum Liverpool
433Sport
Í gær

Segir logið til um alvarleg slagsmál – „Ég sló höfðinu óvart í borð“

Segir logið til um alvarleg slagsmál – „Ég sló höfðinu óvart í borð“
433Sport
Í gær

Telur að eiginmaður sinn hafi tekið eigið líf eftir að hafa orðið fyrir einelti í starfi

Telur að eiginmaður sinn hafi tekið eigið líf eftir að hafa orðið fyrir einelti í starfi
433Sport
Í gær

Miði á úrslitaleik HM til sölu á vel á annan milljarð

Miði á úrslitaleik HM til sölu á vel á annan milljarð
433Sport
Í gær

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður