

Sparkspekingur í Mexíkó fór ekki fram úr sér þó landsliðið þar í landi hafi unnið Ísland 4-0 í vikunni.
Liðin mættust í vináttulandsleik, þar sem bæði lið tefldu að mestu fram leikmönnum úr sínum deildum þar sem leikurinn var spilaður utan landsleikjaglugga.
„Ísland er ekki réttur mælikvarði til að meta getu mexíkóska landsliðsins. Ísland er ekki búið að spila leik í nokkra mánuði og þetta gefur ekki rétta mynd,“ sagði einn sérfræðingur í setti.
„Leikirnir gegn Portúgal og Belgíu munu sýna raunverulega hvar liðið stendur,“ bætti hann við.
Mexíkó bætir þessum tveimur andstæðingum eftir um mánuð, í landsleikjaglugga þar sem allir bestu leikmennirnir verða til taks.
Mexíkó er ein af gestgjafaþjóðum á lokakeppni HM í sumar.
🇮🇸 „Islandia no es parámetro para medir el nivel de México“ 📉🧐
💥 Contundente mensaje de la mesa de ‘Peloteando’ en @ClaroSports 👥☝️
📽️: @JimenezrMark pic.twitter.com/2sIl9IF6P9
— AS México (@ASMexico) February 26, 2026