

Greiningarfyrirtækið TransferRoom hefur bent á Unai Emery sem besta kostinn í stjórastöðu Manchester United, samkvæmt nýrri úttekt á leikmannahópi félagsins.
Í greiningunni var skoðað hvaða þjálfari myndi henta best núverandi leikmannahópi United, og þar kom Emery efstur af tíu mögulegum kostum.
Michael Carrick stýrir United nú tímabundið en kemur til greina til framtíðar.
Spánverjinn hefur vakið mikla athygli fyrir árangur sinn með Aston Villa, þar sem hann hefur byggt upp skipulagt og agað lið sem spilar árangursríkan fótbolta.
United hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og óvissa ríkir um framtíð stjórastólsins. Því gæti niðurstaða TransferRoom haft áhrif á umræðuna um næsta skref félagsins.
Ekki liggur þó fyrir hvort United hafi raunverulegan áhuga á Emery, sem er samningsbundinn Aston Villa. Ljóst er þó að nafn hans mun halda áfram að koma upp í umræðunni ef leit hefst að nýjum knattspyrnustjóra.