
Jack Grealish lét í sér heyra á samfélagsmiðlum þegar gagnrýni var beint að Raheem Sterling eftir frumraun hans hjá Feyenoord.
Sterling, sem er 31 árs, gekk til liðs við hollenska félagið eftir að hafa yfirgefið Chelsea. Hann kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri á Telstar um helgina en leit eðlilega út fyrir að vera ryðgaður eftir að hafa ekki spilað í langan tíma.

Einn aðgangur á Instagram gerði grín að frammistöðunni og spurði hvort tími væri kominn til að leggja skóna á hilluna. Grealish, sem er á mála hjá Everton að láni frá Manchester City, var allt annað en sáttur.
„Þvílíkt heimsk færsla, hvað er að? Hann hefur ekki spilað eða æft í svo langan tíma. Þið eruð það sem er að heiminum. Sýnið smá virðingu,“skrifaði Grealish um fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester City og enska landsliðinu.
Sterling hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár. Hann var algjörlega úti í kuldanum hjá Chelsea síðustu mánuðina og gat lítið á láni hjá Arsenal í fyrra.
