fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hefur fundið ástina á nýjan leik eftir að hafa sparkað barnsmóðir sinni út fyrir jól

433
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alejandro Garnacho virðist vera kominn í nýtt samband ef marka má nýjustu fregnir frá erlendum miðlum, en kantmaður Chelsea hefur sést í fríi í Egyptalandi með TikTok-stjörnunni Adriana Lobaz.

Samkvæmt fréttamanninum Javi de Hoyos eyddu þau nokkrum dögum saman í Egyptalandi og birtust meðal annars myndir af þeim saman í safarí í eyðimörkinni. Þá hefur einnig verið greint frá því að þau hafi gist á sama hóteli og jafnvel í sama herbergi, auk þess sem Garnacho á að hafa gefið henni blóm á Valentínusardaginn.

Getty Images

Garnacho, sem er 21 árs, hætti með fyrrverandi kærustu sinni Evu Garcia í október á síðasta ári, en þau eiga saman son sem fæddist árið 2023. Nú virðist Argentínumaðurinn hafa snúið sér að nýju sambandi, þó hvorugt þeirra hafi staðfest það opinberlega.

Lobaz er spænskur áhrifavaldur með tæplega 40 þúsund fylgjendur á TikTok þar sem hún hefur safnað yfir 1,4 milljónum „likes“. Hún hefur einnig deilt myndum úr ferðinni þar sem hún nýtur sólarinnar í Egyptalandi, meðal annars í eyðimörkinni og við sjóinn.

Myndirnar af henni og Garnacho hafa vakið mikla athygli meðal knattspyrnuáhugamanna, þó athugasemdir við myndbönd hennar séu lokaðar.

Garnacho mun þó líklega beina athyglinni að fótboltanum á næstu dögum þar sem Chelsea berst fyrir Meistaradeildarsæti en Garnacho var ónotaður varamaður gegn Burnley um helgina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá