fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Uppljóstrar því sem David Beckham sagði við hana í miðju kynlífi og hafði mikil áhrif

433
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rebecca Loos, konan sem David Beckham hélt framhjá Victoriu með, segir að stórstjarnan hafi látið sér líða eins og hún væri einstök. Hún féll algjörlega fyrir honum.

Þetta var rifjað upp í kjölfar hins mikla fjaðrafoks sem hefur verið í kringum Beckham fjölskylduna undanfarið vegna stríðs foreldranna við elsta soninn Brooklyn.

David á að hafa haldið framhjá með Loos eftir að hann gekk í raðir Real Madrid frá Manchester United 2003. Hún var aðstoðarkona hans en fjölskylda David flutti ekki út til spænsku höfuðborgarinnar fyrst um sinn.

Rebecca sagði við Daily Mail að eftir að David flutti út til Madrídar hafi eitthvað farið að myndast á milli þeirra. Fóru þau til að mynda að haldast í hendur í bílnum að hennar sögn.

Þá segir Rebecca einnig frá kvöldinu afdrifaríka sem þau stunduðu kynlíf. „Hann lét mér líða eins og ég væri einstök,“ rifjaði Rebecca upp.

„Ég man að ég sneri mér að honum og sagði honum að hann væri heppinn að geta verið með þeirri sem hann vildi. Hann horfði á mig og sagðist aldrei hafa gert þetta áður. Ég hugsaði: Vá. Ég féll algjörlega fyrir þessu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá